Fjármálalæsi

December 23, 2008

Mig langar að fjalla aðeins um fjármálalæsi (e. financial literacy) og hugsanlegt hlutverk fjármálafyrirtækja á því sviði.

Í haust skipaði Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, nefnd til þess að kanna stöðu fjármálalæsis á Íslandi, meta þörf á aðgerðum til að bæta þekkingu almennings á vörum og þjónustu fjármálafyrirtækja og gera tillögur um aðgerðir. Nefndin á að skila skýrslu fyrir lok 2008. Fréttatilkynningu viðskiptaráðuneytisins má finna hér.

Aukin áhersla hefur verið lögð á fjármálalæsi á undanförnum árum í nágrannaríkjm okkar, og hefur þar OECD gegnt forystuhlutverki og hvatt ríkisstjórnir OECD landa til að efna til aðgerða til að auka fjármálalæsi.

Samhliða aðgerðum ríkisstjórna hafa ýmis fjármálafyrirtæki á undanförnum árum haft frumkvæði að fræðsluefni fyrir almenning, sem hluti af samfélagsábyrgð þeirra. Sum fyrirtæki hafa lagt áherslu á fræðsluefni fyrir yngstu kynslóðina en önnur hafa þróað efni fyrir aðra markhópa, svo sem eldri borgara. Fræðsluefnið er yfirleitt aðgengilegt á vefsíðum fyrirtækjanna en í sum fyrirtæki velja þá leið að hefja samstarf með samtökum sem hafa sérþekkingu á sviði fræðslumála.

Krafa er á hin nýju íslensku fjármálafyrirtæki að þau veiti aðgengilegar og skýrar upplýsingar um vörur sínar og þjónustu en þau geta líka gengið lengra með því að stuðla að auknu fjármálalæsi með ýmsum leiðum og nýta til þess sérfræðiþekkingu starfsfólks. Gæta skal þó að innlegg fjármálafyrirtækja til eflingu fjármálalæsis sé í samræmi við stefnu ríkisins, sem mun vonandi skýrast í byrjun næsta árs.

Alþjóðlegir bankar sem hafa staðið framarlega í að stuðla að fjármálalæsi eru t.d. Citibank, HSBC, Barclays og ANZ.

Ég vann fyrr á þessu ári við stefnumörkun ING Bank á sviði fjármálalæsis og get gefið nánari upplýsingar um efnið ef áhugi er til staðar.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.