Global Reporting Initiative (GRI)
www.globalreporting.org
GRI hefur þróað alþjóðlegan staðal fyrir skýrslur fyrirtækja um samfélagsábyrgð (e. sustainability reports). GRI staðalinn er vinsælasti alþjóðlegi staðallinn fyrir fyrirtæki sem gefa út slikar skýrslur. Staðallinn lýsir hvernig gera á samfélagsábyrgðar skýrslur og hvað þær eiga að innihalda á sviði efnaghags-, umhverfis-, og samfélagsmála. Staðalinn er hægt að nálgast ókeypis á heimasíðu GRI.
World Business Council for Sustainable Development (WBCSD)
www.wbcsd.org
World Business Council for Sustainable Development (WBCSD) eru samtök 200 fyrirtækja sem leggja áherslu á samfélagsábyrgð og sjálfbæra þróun. Samtökin leiða saman fyirtæki til að deila vitnesku um sjálfbæra þróun með áherslu á orku- og loftslagsmál, þróunarmál og hlutverk fyrirtækja í að stuðla að sjálfbærri þróun. WBCSD vinnur með ríkisstjórnum, alþjóðastofnunum, og grasrótarsamtökum til að koma áherslum fyrirtækja í þessum málaflokkum á framfæri.
United Nations Global Compact
www.unglobalcompact.org
UN Global Compact er vetvangur fyrir fyrirtæki hafa skuldbundið sig til að samhæfa starfsemi sína tíu grundvallar reglum um mannréttindi, vinnuréttamál, umhverfismál og varnir gegn spillingu. Með þessari skuldbindingu geta fyrirtæki stuðlað að því að markaðir, viðskipti og tækni þróist á jákvæðan hátt fyrir efnahagi og samfélög um allan heim.
Business for Social Responsibility (BSR)
www.bsr.org
BSR eru samtök sem stuðla að þróun viðskiptalausna fyrir fyrirtæki, með áherslu á samfélagsábyrgð og langtímasýn. BSR veitir ráðgjöf, stundar rannsóknir og leiðir saman fyrirtæki í mismunandi starfsgreinum til að stuðla að ábyrgari og sjálfbærri viðskiptaháttum. Yfir 250 fyrirtæki eru aðilar að BSR.